2017-12-14 17:23:33 CET

2017-12-14 17:23:46 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn  lauk í dag  útboði sértryggðra skuldabréfa  þar sem fjórir flokkar
voru boðnir til sölu.

Heildartilboð  í útboðinu  voru nítján  talsins og  námu samtals 1.820 m. kr. að
nafnverði.

Þrjú  tilboð að fjárhæð 180 m. kr. að  nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á
ávöxtunarkröfu á bilinu 5,13%-5,20%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Tvö  tilboð að fjárhæð 140 m.  kr. að nafnverði bárust  í flokkinn LBANK CB 23 á
ávöxtunarkröfu  á  bilinu  5,17%-5,19%. Öllum  tilboðum  var  tekið í flokkinn á
ávöxtunarkröfunni   5,19%. Heildarstærð  flokksins  verður  1.380 m.  kr.  eftir
viðbótarútgáfuna.

Átta  tilboð að fjárhæð 860 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 24 á
ávöxtunarkröfu  á bilinu 2,52%-2,59%. Tilboðum að fjárhæð 580 m. kr. var tekið í
flokkinn  á ávöxtunarkröfunni 2,57%. Heildarstærð  flokksins verður 9.600 m. kr.
eftir viðbótarútgáfuna.

Sex  tilboð að fjárhæð 640 m. kr. að  nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á
ávöxtunarkröfu  á  bilinu  2,40%-2,46%. Öllum  tilboðum  var  tekið í flokkinn á
ávöxtunarkröfunni  2,46%. Heildarstærð  flokksins  verður  19.960 m.  kr.  eftir
viðbótarútgáfuna.

Stefnt  er  að  töku  skuldabréfanna  til  viðskipta  á Nasdaq Iceland þann 21.
desember  2017. Arion  banki,  Íslandsbanki  og  Kvika  sinna  viðskiptavakt með
sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan
í  lög nr. 11/2008 og reglur  Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar
um  skuldabréfin og  tryggingasafnið má  finna á  vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.


[]