2009-04-06 17:42:18 CEST

2009-04-06 17:43:21 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Sparisjóðurinn í Keflavík - Ársreikningur

Leiðrétting - Ársreikningur 2008 - Frétt birt 2009-04-03 21:48:34


Leiðrétting felur í sér að sett var neðanmálsgrein með Rekstarreikningi á bls.
4 þar sem segir „Samanburðartölur fyrir rekstarliði í samstæðuársreikningi
fyrir árið 2007 innihalda aðeins tölur vegna Sparisjóðsins í Keflavík fyrir
sameiningu við Sparisjóð Húnaþings og Stranda og Sparisjóð Vestfirðinga.“ 
Breytingin er send vegna rangfærslna/misskilnings í fjölmiðlum.



Rekstrarárið 2008

Afkoma Sparisjóðsins í Keflavík var neikvæð um 17.042 m.kr. að teknu tilliti
til tekjuskatts. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins er 7,06%. Afkoma Sparisjóðsins
fyrir skatta var neikvæð um 19.064 m.kr. Tap Sparisjóðsins má fyrst og fremst
rekja til eignarýrnunar vegna efnahagshrunsins og varúðarniðurfærslu á
útistandandi kröfum. Að teknu tilliti til sértækra aðgerða og væntanlegs
framlags ríkissjóðs samkvæmt heimild í 2. gr. laga nr. 125/2008 (Neyðarlög)
gera áætlanir ráð  fyrir því að í lok apríl verði eiginfjárhlutfall sjóðsins
komið í 13,83%. 

Eiginfjárhlutfall sparisjóðsins

Útlánaskoðun  Fjármálaeftirlisins  hjá Sparisjóðnum í Keflavík fyrri hluta
marsmánaðar leiddi til enn frekari niðurfærslu á útlánaeignum en drög að
ársuppgjöri höfðu gert ráð fyrir. Við reikningsskilin um áramót hefur að fullu
verið tekið tillit til þeirra ábendinga sem þýðir að í ársreikningi er
eiginfjárhlutfall (CAD) Sparisjóðsins í Keflavík 7,06%, eins og það er
skilgreint í 84. gr. laga nr. 161/2002. 

Í ljósi þess að eiginfjárgrunnur Sparisjóðsins í Keflavík var samkvæmt þessu
kominn undir hið lögboðna 8% hlutfall, hefur stjórn Sparisjóðsins þegar gripið
til aðgerða þ.m.t. sent Fjármálaeftirlitinu greinagerð um hvaða ráðstafana
verður gripið til. Vinna hefur verið lögð í að laga gjaldeyrisjöfnuð
Sparisjóðsins, en með setningu reglugerðar 1130 frá 15. desember 2008 voru
afleiðuviðskipti þar sem króna er í samningi gagnvart erlendum gjaldmiðlum
óheimil. Afleiðing af þessari lagasetningu var að gjaldeyrisjöfnuður varð
ójafn. 

Aðgerðir til að bæta eiginfjárhlutfallið hafa snúist um að færa útlán á milli
gjaldmiðla og hefur töluverður ávinningur náðst nú þegar sem hefur beint áhrif
á eiginfjárhlufall Sparisjóðsins. Við þessar breytingar eykst
eiginfjárhlutfallið um 0,92% og verður 7,98%. Sparisjóðurinn hefur einnig
fengið vilyrði fyrir víkjandi láni að fjárhæð 350 milljónir sem styrkir
eiginfjárgrunn sjóðsins. Þessar aðgerðir munu laga eiginfjárhlutfallið sem
nemur 0,38% sem þýðir að Sparisjóðurinn nær þá 8,36% eiginfjárhlutfalli. Þessu
til viðbótar hefur stjórn Sparisjóðsins í Keflavík sótt um aðstoð frá ríkinu
byggt á neyðarlögunum nr. 125/2008 sem sett voru í október 2008. Til viðbótar
við aðgerðir stjórnar myndi eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins lagast sem nemur
5,47% ef þessi aðstoð gengi eftir, og verða 13,83%. 

Gripið hefur verið til verulegra aðhaldsaðgerða í rekstri og m.a. hafa æðstu
stjórnendur og verulegur hluti starfsmanna gefið eftir hluta launa sinna. Þá
hefur störfum fækkað sem nemur 22 stöðugildum á síðastliðnum 12 mánuðum. Gengið
verður enn lengra í aðhaldsaðgerðum á næstunni. 


Helstu niðurstöður úr rekstar- og efnahagsreikningi:

ATH. Samanburðartölur fyrir rekstarliði í samstæðuársreikningi fyrir árið 2007
innihalda aðeins tölur vegna Sparisjóðsins í Keflavík fyrir sameiningu við
Sparisjóð Húnaþings og Stranda og Sparisjóð Vestfirðinga. 

•  Afkoma Sparisjóðsins í Keflavík fyrir árið 2008 var neikvæð um 19.064 m.kr.
   fyrir skatta samanborið við 2.234 hagnað árið 2007. Tap eftir skatta nam
   17.042 m.kr. samanborið við 1.890 m.kr. hagnað árið 2007 

•  Hreinar vaxtatekjur námu 552,6 m.kr. og jukust um 8,6% frá fyrra ári. Hreinar
   þjónustutekjur námu 436 m.kr. samanborið við 414,9 m.kr. árið 2007. 

•  Hreint rekstartap nam 9.903 m.kr. samanborið við tekjur að fjárhæð 3.904
   m.kr. árið 2007. Rekstargjöld námu 2.396 m.kr. á árinu 2008 samanborið við
   1.506 m.kr. árið 2007. 

•  Útlán til viðskiptamanna námu 84.479 m.kr. í lok árs 2008 samanborið við
   62.369 m.kr. í lok árs 2007. Vaxtamunur tímabilsins var 0,6% samanborið við
   1,2% á árinu 2007. Heildareignir námu 98.012 m.kr. og höfðu aukist um 4,24% á
   milli ára.
•  Virðisrýrnun nam 6.764 m.kr. á árinu 2008 í samanburði við 164 m.kr. árið
   2007. Afskriftarreikningur  lána og krafna nam í árslok 2008 7,5% af útlánum
   og veittum ábyrgðum en var 1,6% í árslok 2007. 

•  Eigið fé í árslok nam 5.409 m.kr. og hefur dregist saman um 20.052 m.kr.
   milli ára. Eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins í Keflavík er 7,06%.


Rekstrarreikningur: Sjá viðhengi.

Efnahagsreikningur: Sjá viðhengi.

Lausafjárstaða og fjármögnun

Samningur milli sparisjóðsins og Íbúðalánasjóðs var undirritaður í mars um að
sparisjóðurinn selji Íbúðalánasjóði safn skuldabréfa, að fjárhæð um 10
milljarðar króna, tryggt með veði í íbúðarhúsnæði í samræmi við heimild til
slíkra kaupa skv. lögum nr. 125/2008, reglugerð nr. 1081/2008 og reglur
Íbúðalánasjóðs um kaup á skuldabréfum fjármálafyrirtækja. Íbúðalánasjóður
greiddi 80% af uppreiknuðu virði safnsins og eftirstöðvarnar, eða 20%, er krafa
sparisjóðsins á Íbúðalánasjóð sem kemur til með að verða gerð upp að 8 árum
liðnum. 

Samningar hafa náðst við erlenda lánadrottna en sparisjóðurinn skuldar nú tvö
erlend sambankalán að fjárhæð 49 milljónir evra. Gjalddagi var á öðru láninu
þann 27. mars og náðist samkomulag um að greiða hluta lánsins á gjalddaganum og
framlengja hluta. Næsti stóri gjalddagi á erlendu láni er í maí 2010. 

Ljóst er að fjármögnun sparisjóða verður að mestu í formi innlána næstu
misserin. Skuldabréfamarkaður með bankabréf er ekki lengur fyrir hendi né
millibankamarkaður með lán. Sparisjóðurinn í Keflavík hefur á síðastliðnum 10
mánuðum greitt um 15 milljarða króna af sínum skuldum til erlendra og innlendra
fjármálastofnanna. 

Eins og áður sagði þá hefur stjórn Sparisjóðsins í Keflavík sótt um aðstoð frá
ríkinu byggt á neyðarlögunum nr. 125/2008 sem sett voru í október 2008. Til
viðbótar við aðgerðir stjórnar myndi eiginfjárhlutfall Sparisjóðsins lagast sem
nemur 5,47% ef þessi aðstoð gengi eftir og verða 13,83%. Framlagið er um 5
milljarðar króna og styrkir lausafjárstöðuna. 

Horfur

Mikil óvissa er um þróun og horfur á næstu misserum. Því er erfitt að spá fyrir
um það með vissu hversu hátt eiginfjárhlutfall er nauðsynlegt hjá
fjármálafyrirtæki til að mæta þeim erfiðleikum sem framundan eru í íslensku
efnahagslífi. Sparisjóðurinn verður að teljast frekar vel í stakk búinn að því
leyti. Sparisjóðurinn í Keflavík er öflug stofnun með sterka markaðshlutdeild á
Suðurnesjum, Vestfjörðum, Snæfellsnesi og í Húnaþingi. Mikill fjöldi
einstaklinga skiptir við sjóðinn, en eignarhaldsfélög og stærri fyrirtæki eru í
mjög litlum mæli í viðskiptamannahópnum. Mikil dreifing og fjölbreytni í hópi
viðskiptamanna verður að teljast jákvæð á komandi misserum. 
Áætlanir sparisjóðsins taka mið af þeim erfiðu aðstæðum sem framundan eru.
Sjóðurinn stóð sterkum fótum áður en áföll dundu yfir í október og hann á því
eftir talsverðan hluta eigin fjár síns og starfsemi hans hefur verið ótrufluð
að mestu. Stjórn sjóðsins telur því að áætlanir séu bæði trúverðugar og
líklegar til þess árangurs að geta haldið áfram þeirri starfsemi sem verið
hefur til heilla fyrir viðskiptavini vítt og breitt um landið. 

Nánari upplýsingar veitir Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri, í síma
421-6605.