2017-04-12 15:17:55 CEST

2017-04-12 15:17:55 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Leiðrétting: Arion banki lýkur víxlaútboði - Frétt birt 2017-04-11 19:26:15 CET


Leiðrétting: Samþykkt tilboð í 5 mánaða víxilinn voru ekki rétt. Samþykkt tilboð voru 280 milljónir króna en ekki 260 milljónir króna. Í heild var tilboðum því tekið fyrir 2.100 milljónir króna í stað 2.080 milljónir króna.

Arion banki hf. lauk í gær, þriðjudag, útboði á víxlum til tólf, sex og fimm mánaða.  Í heild bárust 25 tilboð upp á 4.220 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 2.100 milljónir kr.

Í heild bárust 8 tilboð í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.200 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,10% - 5,35%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 280 milljónir á 5,17% flötum vöxtum.

Í heild bárust 11 tilboð í 6 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.420 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,10% - 5,35%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 320 milljónir á 5,19% flötum vöxtum.

Í heild bárust 6 tilboð í 12 mánaða víxilinn að fjárhæð 1.600 milljónir kr., á flötum vöxtum á bilinu 5,34% - 5,55%. Samþykkt voru tilboð að nafnverði 1.500 milljónir á 5,40% flötum vöxtum.

Stefnt er að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi 21 apríl.

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.