|
|||
![]() |
|||
2016-06-22 09:28:28 CEST 2016-06-22 09:28:28 CEST SÄÄNNELTY TIETO Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Breyting á framkvæmdastjórn Vodafone FæreyjarStjórn P/F Kall hefur komist að samkomulagi við Rúnar Reistrup um að hann taki við sem framkvæmdarstjóri félagsins næsta haust eftir að núverandi atvinnuskyldum hans í Bretlandi lýkur. Fram að þeim degi mun fjármálastjóri félagsins, Bárður Nielsen, gegna stöðu staðgengils framkvæmdarstjóra. Rúnar hefur verið stjórnarmaður í P/F Kall frá 2013 og gegnt stöðu stjórnarformanns frá byrjun árs 2016. Rúnar hefur síðustu ár starfað hjá alþjóðlegum upplýsingatækni- og fjarskiptafyrirtækjum sem frumkvöðull og framkvæmdarstjóri. Meðal annars starfaði hann hjá Vodafone Group frá 2009 til 2013, og var frá 2011 Global Head of Products and Services. P/F Kall er að 100% eigu Fjarskipta hf.. Líkt og á Íslandi er starfsemi félagsins í Færeyjum rekin undir vörumerkinu Vodafone á grundvelli samstarfssamnings við eitt stærsta fjarskiptafyrirtæki í heimi, Vodafone Group. [HUG#2022294] |
|||
|