2008-05-23 18:47:13 CEST

2008-05-23 18:48:13 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Bakkavör Group hf. - Fyrirtækjafréttir

- Bakkavör Group - útgáfa kauprétta


Stjórn Bakkavör Group hf. hefur samþykkt valkvæða kaupréttaráætlun Bakkavör
Group 2008 (e. the Bakkavör 2008 Share Option Plan) sem tekur gildi í dag, 23.
maí 2008. 

Samkvæmt áætluninni, hefur stjórn Bakkavör Group hf. í dag veitt
lykilstarfsmönnum félagsins kauprétt að alls 41,694,568 almennum hlutum í
Bakkavör Group hf. á innlausnargenginu 36 kr. á hlut. Innlausnargengi samkvæmt
áætluninni er skráð markaðsverð hluta í Bakkavör Group hf. við lokun markaða
þann 22. maí 2008. 

Nýting kaupréttar er heimil þegar hann hefur áunnist en kaupréttur ávinnst á
þremur árum frá því hann er veittur og er innleysanlegur innan tveggja ára, eða
frá 23. maí 2011 til  22. maí 2013. Kaupréttur fellur úr gildi fimm árum frá
veitingu, eða þann 23. maí 2013. Skilyrði fyrir nýtingu kaupréttar er að
kaupréttarhafi hafi verið starfsmaður Bakkavör Group hf. á þriggja ára
tímabilinu sem kauprétturinn ávinnst.