2013-02-13 10:24:09 CET

2013-02-13 10:25:10 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Icelandair Group hf. - Fyrirtækjafréttir

Icelandair Group og Boeing ganga frá samningum um kaup á 737 MAX


Sextán staðfestar pantanir og kaupréttur á átta vélum til viðbótar

Þann 6. desember sl. undirrituðu Icelandair Group og Boeing viljayfirlýsingu um
kaup á Boeing 737 MAX flugvélum.  Endanlegir samningar eru nú frágengnir um
kaup þess fyrrnefnda á sextán 737 MAX 8 og 737 MAX 9 flugvélum ásamt kauprétti
á átta 737 MAX flugvélum til viðbótar. Um breytingu á fjölda staðfestra pantana
er að ræða frá viljayfirlýsingunni.   Staðfestum pöntunum fjölgar um fjórar og
verða sextán alls og kaupréttir verða átta í stað tólf áður. Vélarnar verða
afhentar á árunum 2018-2021. Heildarverðmæti flugvélanna sextán samkvæmt
listaverði Boeing er um 1,6 milljarðar bandaríkjadala, en kaupverðið er
trúnaðarmál. 

„Það er okkur mikið ánægjuefni að tilkynna að endanlegir samningar við Boeing
hafa verið undirritaðir.  Þessi kaup munu styrkja stoðir Icelandair Group enn
frekar og auka sveigjanleika og möguleika félagsins til frekari vaxtar. Fyrstu
vélarnar munu koma í okkar rekstur á fyrri hluta árs 2018 og verða notaðar með
núverandi flota af Boeing 757-200 vélum félagsins.” Segir Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. 

Pantaðar eru níu 737 MAX 8 vélar sem taka 153 farþega og sjö 737 MAX 9 vélar
sem taka 172 farþega.  Til samanburðar taka Boeing 757-200 flugvélar Icelandair
Group 183 farþega. Boeing 737 MAX vélarnar eru ný og endurbætt langdrægari
útgáfa af núverandi Boeing 737 vélum. Eldsneytissparnaður samanborið við Boeing
757 vélarnar sem eru notaðar í flota félagsins nemur meira en 20% á sæti. 



Frekari upplýsingar veita:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sími: 896-1455.
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, sími: 665-8801.