|
|||
2009-11-27 16:00:06 CET 2009-11-27 16:01:06 CET REGULATED INFORMATION Spölur ehf. - Ársreikningur- Ársuppgjör 1. október 2008 til 30. september 2009• Tap Spalar ehf eftir skatta fyrir rekstarárið 1. október 2008 til 30. september 2009 nam kr. 129 m.kr. en tap á tímabilinu 1. október 2007 til 30. september 2008 nam 220 m.kr. Hagnaður Spalar ehf eftir skatta á fjórða ársfjórðungi félagsins sem er 1. júlí 2009 til 30. september 2009 nam 54 m.kr. Á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 98 m.kr.Reikningsár Spalar er 1. október til 30. september ár hvert. Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. • Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur vegna vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018. Greiðslugeta félagsins undanfarin 4 ár hefur verið sterk. Um 590 mkr. voru greiddar í afborganir og vexti á rekstrarárinu og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til staðar 30. september 2009 eins og lánasamningar gera ráð fyrir. • Veggjald ársins nam 920 m.kr. til samanburðar við 979 m.kr. árið áður sem er 6,03% lækkun. • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrir árið 1. október 2008 til 30.september 2009 nam 262 m.kr. og lækkar um rúmar 90 m.kr frá árinu áður þegar hann nam 352 m.kr. Skýrist þessi lækkun fyrst og fremst vegna gjaldfærðs rannsóknarkostnaðs vegna nýrra gangna samtals 103 m.kr. á árinu 2008 en 1 m.kr. á árinu 2009. • Afskriftir á rekstrarárinu 2009 námu samtals 232 m. kr. og hækka á milli ára um 3,8%. • Vaxtagjöld, verðbætur og gengismunur lækka á milli ára eða um 100 m. kr. • Skuldir Spalar ehf hækka úr 4.393 m.kr. þann 30. september 2008 í 4.413 m.kr. þann 30. september 2009. Um uppgjörið Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu nokkru meiri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. Hækkun reikningslegra gjaldfærslna vegna hækkunar lána út af vísitöluhækkunum og gengisbreytingum var meiri en áætlað var. Tímabilið frá 1. október 2008 til 30. september 2009 er ellefta heila fjárhagsár félagsins. Á þessu tímabili fóru 1.972 þúsund ökutæki um göngin, sem greiddu veggjald sem er um 1,8% minnkun frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi samsvarar því um 5.400 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern. Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin fara lækkandi, bæði að nafnverði og raunvirði. Skýringin núna er einkum sú núna að færri atvinnuökutæki greiddu veggjald en áður vegna samdráttar í atvinnustarfsemi. Sjá lykiltölur í viðhengi. Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910. |
|||
|