2008-08-29 11:27:33 CEST

2008-08-29 11:28:33 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Ársreikningur

- Afkoma Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2008


Stjórn Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. hefur staðfest árshlutareikning
félagsins fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2008. 

•  Hagnaður Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. eftir skatta á fyrri hluta ársins
   2008 nam 1.157 m.kr. samanborið við 524 m.kr fyrir sama tímabil árið 2007.
   Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti
   af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. 

•  Hreinar rekstrartekjur á tímabilinu námu 2.166 m.kr. samanborið við 1.404
   m.kr. á sama tímabili árið 2007. 

•  Rekstrargjöld á tímabilinu námu 805 m.kr. samanborið við 765 m.kr. á sama
   tímabili árið 2006. 

•  Eigið fé 30. júní árið 2008 nam 3.532 m.kr. skv. efnahagsreikningi miðað við
   4.020 m.kr. 30. júní 2007. Eiginfjárhlutfall, sem reiknað er samkvæmt lögum
   nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki, er 59,7%, en má samkvæmt framangreindum
   lögum ekki vera lægra en 8,0%. 

•  Rekstrarfélagið sér m.a. um eignastýringu og rekstur verðbréfasjóða,
   fjárfestingasjóða og fagfjárfestasjóða. Hlutdeildarskírteini ICEQ
   verðbréfasjóðs, skuldabréf KFF Instistutional Investor Fund og víxlar KB 1M
   hafa verið teknir til viðskipta í OMX Nordic Exchange Iceland hf. Sérstakir
   árshlutareikningar eru gerðir fyrir þá sjóði og þeir birtir sérstaklega í
   fréttakerfi OMX. 

•  Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína
   hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi
   glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu þess 30. júní
   2008 og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við lög um
   ársreikninga. 
   Hægt verður að nálgast árshlutareikning félagsins frá og með deginum í dag
   hjá Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, Reykjavík.
   Nánari upplýsingar um árshlutareikning Rekstrarfélags Kaupþings banka hf.
   veitir Ómar Kaldal Ágústsson, framkvæmdastjóri rekstrarfélagsins, í síma 444
   6000.