2008-08-29 11:43:24 CEST

2008-08-29 11:44:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. - Ársreikningur

- Afkoma ICEQ verðbréfasjóðs á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2008


Framsetning árshlutareiknings ICEQ verðbréfasjóðs er í samræmi við reglur um
reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
Fjármálaeftirlitinu. 

•  Tap varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu að fjárhæð 1.001 m.kr. samkvæmt
   rekstrarreikningi og er tapið fært til lækkunar á hlutdeildarskírteinum ICEQ
   verðbréfasjóðs. 

•  Eigið fé sjóðsins nam í lok júní 1.320 m.kr. skv. efnahagsreikningi.

•  Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína
   hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi
   glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag hans 30. júní 2008 og
   breytingu á hreinni eign á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga. 

Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili ICEQ
verðbréfasjóðs nam þann 30. júní 2008 3.532 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.
Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum nr. 161/2002 um
fjármálafyrirtæki er 59,7% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en
8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og
hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. 

Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag hjá
Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um árshlutareikning ICEQ verðbréfasjóðs veitir Sigþór
Jónsson sjóðstjóri í síma 444 6000.