2009-11-24 09:47:51 CET

2009-11-24 09:48:51 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hitaveita Suðurnesja - Fyrirtækjafréttir

- HS Orka hf semur við lánadrottna


HS Orka hf hefur nú náð samkomulagi við lánadrottna sína um breytingar á
skilmálum erlendra lána eftir að fyrir lá að félagið uppfyllti ekki kröfur um
eiginfjárhlutfall og rekstrarhlutföll í kjölfar falls íslensku krónunnar. 

Þegar fyrir lá í upphafi þessa árs að HS Orka hf stóð ekki lengur við kröfur í
lánasamningum um eiginfjárhlutfall eftir að krónan féll, var þess sérstaklega
getið í ársreikningi félagsins og í áritun endurskoðenda.  Félagið hóf strax
samningaviðræður við erlenda lánveitendur sína, Norræna fjárfestingarbankann
(NIB), Evrópska fjárfestingarbankann (EIB) og Evrópska þróunarbankann (CEB). 
Þessar viðræður hafa leitt það af sér að nú hefur verið undirritað samkomulag
við banka félagsins.  Samkomulagið felur í meginatriðum í sér að lánveitendur
HS Orku hf. auka svigrúm félagsins til frávika frá fjárhagskvöðum ásamt því að
samþykkja uppskiptingu Hitaveitu Suðursnesja í HS Orku hf og HS Veitur hf. 
Þess í stað veitir HS Orka hf. beinar veðtryggingar vegna lána í eignum
félagsins, í stað óbeinna veða áður, auk þess sem bankarnir hækka vaxtaálag
sitt tímabundið.  Þá er staðfest að bankarnir viðurkenna HS Orku hf. sem nýjan
skuldara í stað Hitaveitu Suðurnesja hf. í kjölfar uppskiptingar fyrirtækisins. 
„Það er afar ánægjulegt og mikilvægt fyrir félagið að hafa náð þessu
samkomulagi við lánveitendur sína,“ segir Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf.
 Júlíus bætir við „að með þessu samkomulagi er þeirri fjárhagslegu óvissu eytt,
sem félagið hefur búið við á árinu.“  Júlíus segir jafnframt að 9 mánaða
uppgjör félagsins sýni fram á bata á hlutföllum í takt við áætlanir félagsins
en eiginfjárhlutfall þess var 23% í lok september í stað 16,3% í ársbyrjun. 

„Með þessu samkomulagi skapast svigrúm til að HS Orka hf geti sótt sér aukið
fjármagn til fyrirhugaðra framkvæmda við uppbyggingu gufuaflsvirkjana hér á
Suðurnesjum,“ segir  Ásgeir Margeirsson, stjórnarformaður HS Orku hf. 

Nánari upplýsingar:
Júlíus Jónsson, forstjóri HS Orku hf