|
|||
2014-04-29 17:39:45 CEST 2014-04-29 17:40:46 CEST REGULATED INFORMATION Grindavíkurbær - ÁrsreikningurÁrsreikningur Grindavíkurbæjar fyrir árið 2013Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2013 verður lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Grindavíkur þann 29. apríl 2014. Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn og verður seinni umræða þann 13. maí 2014 og á þeim fundi er samþykkt bæjarstjórnar á ársreikningnum fyrirhuguð. Ef bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd og við afgreiðslu og samþykkt bæjarstjórnar koma ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans, munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun. |
|||
|