2010-04-30 19:24:12 CEST

2010-04-30 19:25:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Byggðastofnun - Ársreikningur

Ársreikningur 2009


Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2009, var staðfestur af stjórn
stofnunarinnar 30. apríl 2010. 

Tap ársins nam 3.015 mkr.  Samkvæmt ársreikningnum er eigið fé stofnunarinnar
1.130 mkr. 

Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar fyrir árið 2009:
•	Tap stofnunarinnar á árinu nam 3.015 mkr.
•	Hreinar vaxtatekjur voru jákvæðar um 684,6 mkr. samanborið við 459,6 mkr.
hreinar vaxtatekjur á árinu 2008. 
•	Rekstrartekjur námu 509,3 mkr.
•	Almenn rekstrargjöld, styrkir og framlög til atvinnuþróunarfélaga námu 487,5
mkr. 
•	Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreyting hlutafjár nam 3.721 mkr.
•	Handbært fé frá rekstri nam 522 mkr.
•	Endanlega töpuð útlán námu 430 mkr.
•	Eignir námu 23.714 mkr. og hafa hækkað um 405,4 mkr. frá árinu 2008.  Þar af
voru útlán 17.763 mkr. 
•	Skuldir námu 22.584 mkr. og hafa hækkað um 820 mkr. frá árinu 2008.
•	Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 368,3 mkr. 
•	Alþingi samþykkti í Fjáraukalögum 2009, 2.600 mkr. framlag til að auka eigið
fé stofnunarinnar. 
•	Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er 4,92% en skal að
lágmarki vera 8% 

Um ársreikninginn

Vegna hruns íslensku bankanna og erfiðs efnahagsástands hefur stofnunin þurft
að leggja aukna fjármuni inn á afskriftarreikning útlána vegna mögulegrar
taphættu.  Á árinu var þessi fjárhæð 3.721 mkr. í samanburði við 1.660 mkr.
árið 2008.  Skýrist tap stofnunarinnar á árinu af þessum varúðarfærslum. 

Hreinar vaxtatekjur stofnunarinnar námu 684,6 mkr. og hafa aukist jafnt og þétt
undanfarin ár.  Afskriftarreikningur útlána er myndaður til að mæta hugsanlegum
töpum í framtíðinni.  Framlög í afskriftarreikninginn námu 3.721 mkr. á árinu
2009 og var hlutfall afskriftarreiknings af heildarútlánum 21%.  Vegna
bankahrunsins, falls íslensku krónunnar og efnahagsþrenginga hefur stofnunin
þurft að leggja til hliðar í afskriftarreikning til að bregðast við töpum í
framtíðinni. 

Nýjar lánveitingar drógust saman á tímabilinu og námu 1.148 mkr. samanborið við
3.881 mkr. á árinu 2008. 

Í byrjun ársins gaf stofnunin út skuldabréf og bauð í lokuðu útboði og nam
útgáfufjárhæðin 1.000 mkr.  Töluverð umframeftirspurn var eftir skuldabréfunum. 

Horfur

Til að bregðast við því að koma eiginfjárhlutfalli Byggðastofnunar yfir 8%
lögbundið lágmark samþykkti Alþingi 1.000 mkr. aukningu á eiginfé hennar í
Fjárlögum 2010. 

Á árinu 2010 er á gjalddaga skuldabréfaflokkurinn BYG 98 sem gefinn var út
1998. 
Byggðastofnun hefur tryggt fjármagn til að standa við greiðslu á honum. 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í
síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is