|
|||
![]() |
|||
2015-06-11 19:24:58 CEST 2015-06-11 19:25:38 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðirÍslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á einum óverðtryggðum og tveimur verðtryggðum flokkum sértryggðra skuldabréfa. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 20 var stækkaður um 920 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,35% og verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 1.880 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,43%. Heildarstærð ISLA CBI 20 varð við þessa útgáfu 4,12 ma. kr. en heildarstærð ISLA CBI 26 er nú orðin 4.24 ma. kr. Var þetta síðasta útboðið á ISLA CBI 20 þar sem líftími hans fer undir 5 ár síðar í þessum mánuði. Alls hefur Íslandsbanki gefið út átta flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð 39,35 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011. Heildareftirspurnin í útboðinu var 2,88 ma. kr., en 97% tilboða var tekið. Stefnt er á töku bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 19. júní næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Upplýsingafulltrúi - Már Másson, mar.masson@islandsbanki.is og í síma 440 4990. [HUG#1928040] |
|||
|