2025-02-19 16:45:00 CET

2025-02-19 16:45:01 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Íslandsbanki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - lok umferðar


Vísað er til tilkynningar Íslandsbanka hf. sem birt var 22. janúar 2025 um áframhaldandi framkvæmd endurkaupaáætlunar á eigin bréfum sem upphaflega var tilkynnt um 14. júní 2024. Það sem af er viku 8 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 795.019 eigin hluti að kaupverði alls kr. 103.093.706 eins og nánar er greint í þessari tilkynningu.

Það sem af er viku 8 keypti Íslandsbanki hf. (bankinn) 795.019 eigin hluti að kaupverði alls kr. 103.093.706 eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímasetning viðskiptaKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr)Eigin hlutir eftir viðskipti
18.2.2509:57450.000130,0058.500.000119.184.211
19.2.2510:02:00345.019129.2544.593.706119.529.230
 Samtals795.019
103.093.706

Fyrir framangreind viðskipti í viku 8 átti bankinn 118.734.211 hluti, sem nemur 5,94% af útgefnum hlutum.

Þessari umferð endurkaupa, sem tilkynnt var um í kauphöll þann 22. janúar 2025, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 10 milljón hluti sem jafngildir 0,50% af útgefnu hlutafé bankans, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna að þessu sinni verði aldrei meiri en samtals kr. 1.000.000.000.

Í þessari umferð endurkaupa keypti bankinn 7.995.019 hluti, sem nemur 0,40% af útgefnum hlutum og nemur heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 999.999.956 í umferðinni. Framangreindu hámarki heildarfjárhæðar endurkaupa er því náð í þessari umferð. Áform um bestun á eiginfjársamsetningu bankans eru enn í forgangi, að teknu tilliti til markaðsaðstæðna.

Frá upphafi endurkaupa í febrúar 2023 hefur bankinn keypt samtals 119.529.230 eigin hluti eða sem nemur 5,98% af útgefnum hlutum í bankanum.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014 og framselda reglugerð Framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052, lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 og reglur nr. 1275/2024 um sama efni. Samþykki Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands vegna kaupa bankans á eigin hlutum er fyrirliggjandi.