|
|||
![]() |
|||
2015-10-28 13:27:22 CET 2015-10-28 13:28:22 CET REGULATED INFORMATION Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - FyrirtækjafréttirLánasjóður sveitarfélaga - Niðurstaða viðbótarútgáfu úr skuldabréfaútboðiLánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokki LSS150434 þann 27. október 2015. Uppgjör viðskipta fer fram föstudaginn 30. október 2015. Samkvæmt 1. gr. í skilmálum aðalmiðlarasamnings í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga stendur aðalmiðlurum til boða að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á meðalverði samþykktra tilboða til kl. 12 á næsta virka degi eftir að útboði lýkur. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í réttu hlutfalli við það magn sem þeir hafa keypt í útboðinu. Alls bárust tilboð í LSS150434 að nafnvirði ISK 1.110.000.000 á bilinu 2,61% - 2,70%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 550.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,61%. Að þessu sinni nýttu aðalmiðlarar sér kaupréttinn í LSS150434 fyrir ISK 50.000.000 sem Lánasjóðurinn selur af eigin bréfum sjóðsins. Heildarmagn seldra bréfa í flokki LSS150434 nemur því að nafnvirði ISK 600.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,61%. Útistandandi fyrir voru ISK 18.629.352.565. Heildarstærð flokksins er nú ISK 19.179.352.565. Nánari upplýsingar veitir: Egill Skúli Þórólfsson Sími: 515 4947 e-mail: egill@lanasjodur.is |
|||
|