2014-03-17 10:26:46 CET

2014-03-17 10:27:11 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf. : Vodafone stefnir Tali til greiðslu viðskiptaskuldar


Vodafone (Fjarskipti hf.) hefur stefnt Tali (IP-Fjarskiptum ehf.) fyrir
Héraðsdómi Reykjavíkur til greiðslu reikningsskuldar, vegna fjarskiptaþjónustu
sem Vodafone veitti Tali á grundvelli samninga á árunum 2011 og 2012. Krafa
Vodafone nemur  rúmlega 117 milljónum króna og krefst félagið þess að fá þá
upphæð greidda auk vaxta.

Til grundvallar kröfunni liggja reikningar frá Vodafone sem Tal hefur ekki
greitt, auk eftirstöðva af reikningum sem Tal hefur greitt að hluta.

Það er afstaða Vodafone að fyrirliggjandi samningar milli félaganna feli í sér
ótvíræða greiðsluskyldu af hálfu Tals og að málatilbúnaður Vodafone byggi á
sterkum lagalegum grunni. Rétt er að taka fram að óvissa ríkir um niðurstöðu
dómsmálsins. Verði Tal dæmt til greiðslu á framangreindri kröfu Vodafone mun það
hafa jákvæð áhrif á fjárhag Vodafone.

Áður uppgefið um málið í skráningarlýsingu Fjarskipta hf. (bls. 17 í
útgefandalýsingu) dags. 19. nóvember 2012:"Ágreiningur er uppi á milli Fjarskipta og Tals vegna ógreiddra reikninga sem
Fjarskipti hafa gefið út á hendur Tali. Forsaga málsins er sú að Tal og
Fjarskipti gerðu með sér endursölusamning um að Tal keypti tiltekna
fjarskiptaþjónustu af Fjarskiptum í heildsölu. Á árinu 2011 kom upp ágreiningur
milli félaganna varðandi reikninga sem Fjarskipti gáfu út á hendur Tali vegna
umframgagnamagns, þ.e. kaupa Tals á gagnaflutningi umfram tiltekin mörk, og
vegna innsláttar pantana en samkvæmt samningi fyrirtækjanna hafa Fjarskipti
umsjón með innslætti pantana vegna viðskiptavina Tals gegn gjaldi.

Á fyrri hluta árs 2012 greiddi Tal hluta af þeim reikningum sem ágreiningur
ríkir um en eftir stendur ágreiningur um fimm reikninga vegna ársins 2011. Til
viðbótar við þær fjárhæðir sem um ræðir hafa Fjarskipti uppi kröfu á hendur Tali
um greiðslu áfallandi dráttarvaxta, innheimtu- og málskostnaðar. Þann 31. mars
2011 gaf Tal út reikning á hendur Fjarskiptum sem fyrirtækið kveðst byggja á
kröfu um endurgreiðslu vegna meintrar ofrukkunar Fjarskipta vegna
fastlínuþjónustu í heildsölu. Stjórnendur Fjarskipta telja kröfuna tilhæfulausa.

Fjarskipti undirbúa nú málshöfðun á hendur Tali til greiðslu þeirra fimm krafna
frá árinu 2011 sem ágreiningur er um og að framan er lýst. Reikna má með að Tal
krefjist sýknu af kröfum Fjarskipta og hafi jafnframt uppi gagnkröfu á hendur
Fjarskiptum vegna framangreinds reiknings frá 31. mars 2011. Það er afstaða
Fjarskipta að samkvæmt fyrirliggjandi samningum Fjarskipta og Tals sé
greiðsluskylda Tals ótvíræð. Fari ágreiningur Fjarskipta og Tals fyrir dóm er þó
ekki hægt að ábyrgjast hver lokaniðurstaða málsins verður. Versta mögulega
niðurstaðan fyrir Fjarskipti væri sú að félagið tapaði öllum kröfum sínum á
hendur Tali auk þess að vera dæmt til að endurgreiða Tali fyrrnefnda kröfu
þeirra. Verði niðurstaðan sú gæti slíkt haft í för með sér neikvæð áhrif á
rekstrarhagnað félagsins að fjárhæð 43,2 m.kr.

Besta mögulega niðurstaðan fyrir Fjarskipti væri sú að félaginu væru dæmdar
fullar greiðslur úr hendi Tals auk þess sem framangreindri kröfu Tals á hendur
Fjarskiptum yrði vísað frá. Í slíku tilviki væru heildaráhrifin á rekstrarhagnað
félagsins jákvæð um 109,3 m.kr.

Til viðbótar við þá fimm reikninga sem að framan greinir, sem eru vegna ársins
2011, hefur Tal haldið eftir hluta af greiðslum vegna reikninga útgefnum á árinu
2012. Vanskilin gætu haft neikvæð áhrif á rekstrarhagnað Fjarskipta að fjárhæð
21 m.kr. Útistandandi kröfur vegna ársins 2012 munu fara í hefðbundið
innheimtuferli af hálfu Fjarskipta en kröfur vegna ársins 2011 munu fara fyrir
dómstóla líkt og að framan greinir.

Aðilar hafa undirritað samkomulag þess efnis að Tal hætti alfarið í viðskiptum
við Fjarskipti þann 13. desember 2012. Tal hefur þó möguleika á framlengingu
þess tímabils til 13. febrúar 2013 svo fremi að beiðni þess efnis berist
Fjarskiptum fyrir 1. desember 2012."

Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem málinu vindur fram.

[HUG#1769065]