2015-03-31 11:54:26 CEST

2015-03-31 11:55:27 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Arion Bank hf. - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting: Arion banki stækkar tvo flokka sértryggðra skuldabréfa - Frétt birt 2015-03-27 15:02:45


Leiðrétting: Hvor flokkur var stækkaður um 100.000.000 meira en tilgreint var í
fyrri tilkynningu vegna viðskiptavaktar. 



Arion banki hf. lauk í gær útboði á tveimur útistandandi flokkum sértryggðra
skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq Iceland. Verðtryggði flokkurinn ARION CBI
21 var stækkaður um 1.280.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,25% og verðtryggði
flokkurinn ARION CBI 29 var stækkaður um 2.120.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni
3,30%. Í heild bárust tilboð upp á 4.340 milljónir kr. 

Skuldabréfaflokkarnir eru verðtryggðir með vísitölu neysluverðs og hafa verið
teknir til viðskipta á Nasdaq Íslandi. Samkvæmt útgáfuáætlun Arion banka er
stefnt á næsta verðtryggða útboð í júní. 



Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs
Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.