2021-12-03 12:25:00 CET

2021-12-03 12:25:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Innherjaupplýsingar

Hagar hf. undirrita samning um kaup á nýju hlutafé í Klasa ehf.


Hagar hf. hafa undirritað samning um áskrift að hlutafé í fasteignaþróunarfélaginu Klasa ehf. en líkt og tilkynnt var þann 24. september sl. undirrituðu Hagar hf., Reginn hf., Klasi ehf. og KLS eignarhaldsfélag ehf. viljayfirlýsingu um frekari uppbyggingu og rekstur fasteignaþróunarfélagsins Klasa ehf.

Hagar munu greiða fyrir eignarhlut sinn í Klasa með þróunareignum sem ekki eru hluti af kjarnastarfsemi félagsins. Framlag Haga í viðskiptunum er metið á rúmlega 3,9 ma. kr. og verður eignarhlutur Haga í Klasa 1/3 af útgefnu hlutafé, líkt og eignarhlutur Regins og KLS eignarhaldsfélags. Með framlagi Haga, Regins og KLS eignarhaldsfélags verður heildar umfang þróunareigna Klasa nálægt 280 þúsund fermetrum, auk á annars tug fasteigna í útleigu sem hugsaðar eru til sölu eða frekari þróunar. Verðmæti eigna Klasa eftir viðskiptin verður um 14,8 ma.kr. og eiginfjárhlutfall félagsins í upphafi 79%.

Þróunareignirnar sem Hagar leggja til Klasa eru Stekkjarbakki 4-6, Álfabakki 7, Klettagarðar 27, Álfheimar 49, Egilsgata 5, Tjarnarvellir 5 og Nýbýlavegur 1. Meðal eigna sem Klasi og Reginn leggja félaginu til má nefna Borgarhöfða, þar sem skipulögð hefur verið uppbygging ríflega 1.100 íbúða og atvinnuhúsnæðis á Ártúnshöfða, Smárabyggð, ríflega 13.000 fermetra uppbyggingarreitur atvinnu- og íbúðarhúsnæðis Regins sunnan Smáralindar, auk þróunarlóða að Tjarnarvöllum í Hafnarfirði, Garðahrauni í Garðabæ og Lágmúla í Reykjavík.

Matsaðferð og viðmið um virði þeirra eigna sem Hagar, Reginn og KLS eignarhaldsfélag leggja til Klasa hefur verið samræmt. Sú undantekning er þó gerð að Hagar munu njóta stærri hlutar af mögulegum viðbótarávinningi af verðmætaaukningu vegna uppbyggingar við Stekkjarbakka og Álfabakka en aðrir hluthafar í Klasa.

Jákvæð áhrif sölu eigna Haga, að frádregnum áætluðum sölukostnaði, á EBITDA afkomu eru um 940 millj. kr. og áhrif á hagnað félagsins eftir skatta er um 750 millj. kr. Óvissa er um hvort fjárhagsleg áhrif komi fram á núlíðandi rekstrarári 2021/22 en endanleg tímasetning viðskiptanna er háð fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Klasi ehf. er þekkingarfyrirtæki á sviði fasteignaþróunar og hefur frá árinu 2004 sérhæft sig í þróun, stýringu og rekstri fasteignaverkefna, frá hugmynd að sölu, með hámörkun virði verkefna að leiðarljósi. Með aðkomu Haga og Regins mun grundvöllur starfsemi Klasa styrkjast enn frekar. Þróunarfélagið mun búa að eignasafni sem í felast veruleg tækifæri, umtalsverðum fjárhagslegum styrk auk þekkingar og reynslu til að taka þátt í stærri langtíma verkefnum á öllum stigum fasteignaþróunar. 

Finnur Oddsson, forstjóri Haga:

Markmið okkar með samstarfi um fjárfestingu í Klasa er að koma þróunareignum Haga í skilgreindan farveg þar sem úrvinnsla þeirra fær óskipta athygli fagfólks með mikla reynslu á sviði fasteignaþróunar. Þannig tryggjum við hluthöfum Haga hámörkun á virði þróunareigna félagsins á meðan við getum einbeitt okkur betur að eigin kjarnastarfsemi, á dagvöru- og eldsneytismarkaði.  Allir aðilar samstarfsins, Klasi, Reginn og Hagar, leggja verkefninu til verðmætt veganesti í formi eigna, fjármagns, reynslu og þekkingar og við hlökkum til samstarfsins, sem við gerum ráð fyrir að skili eigendum góðum arði og íslensku samfélagi áhugaverðu umhverfi til uppbyggingar fjölbreyttrar atvinnustarfsemi og íbúðabyggðar.

Ingvi Jónasson, framkvæmdastjóri Klasa:

Það verður fengur fyrir Klasa að fá Haga og Reginn í eigendahópinn enda farsæl og sterk fyrirtæki hvort í sinni grein. Aðkoma nýrra hluthafa er einnig mikil traustsyfirlýsing til félagsins og staðfesting á þeim árangri sem félagið hefur náð á sviði fasteignaþróunar. Þess er vænst að þróunarverkefni Klasa njóti góðs af aukinni sérþekkingu sem fæst með nýjum hluthöfum og að lausnir félagsins í framtíðinni verði enn nær þörfum markaðar hvers tíma. Ýmsar tækniframfarir, aukin vitund, kröfur og tækifæri á sviði sjálfbærnimála á byggingarstigi, við notkun og rekstur fasteigna, sem og þróun í verslunar- og atvinnuháttum mynda nýjar áskoranir og tækifæri í fasteignaþróun.

Viðskiptin eru gerð með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins en áreiðanleikakönnunum er nú lokið.

Ráðgjafi Haga hf. í viðskiptunum er Arctica Finance hf.

Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga, fo@hagar.is.