2016-12-09 18:51:25 CET

2016-12-09 18:51:25 CET


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. : Tilkynning um kaup Landsbankans hf. á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun - lok annars endurkaupatímabils


Þann  15. september 2016 birti Landsbankinn hf. tilkynningu um að bankinn byðist
til  að  kaupa  hluti  af  hluthöfum  samkvæmt  endurkaupaáætlun  á þremur nánar
tilgreindum  endurkaupatímabilum. Annað endurkaupatímabilið  var frá 31. október
2016 til og með 9. desember 2016.

Á  öðru endurkaupatímabili keypti Landsbankinn  samtals 13.759.612 eigin hluti á
genginu 10,6123 að kaupvirði 146.021.130 kr.

Hvorki  bankastjóri Landsbankans né framkvæmdastjórar hjá bankanum seldu hluti í
bankanum á öðru endurkaupatímabili.

Landsbankinn    átti   338.071.878 eigin   hluti   fyrir   viðskiptin   á   öðru
endurkaupatímabili  og á  að því  loknu 351.831.490 eigin  hluti, eða  sem nemur
1,5% af útgefnum hlutum í félaginu.

Landsbankinn    hefur    keypt    samtals   133.521.872 eigin   hluti   samkvæmt
endurkaupaáætluninni  eða sem nemur 0,6% af útgefnum  hlutum í félaginu og nemur
kaupverð  þeirra 1.391.141.455 kr.  Endurkaup samkvæmt  áætluninni munu  nema að
hámarki samtals 480 milljónum hluta eða sem nemur 2% af útgefnu hlutafé.

Landsbankinn  býðst til að kaupa hluti af hluthöfum á þriðja endurkaupatímabili,
sem  stendur frá 13. febrúar 2017 til  og með 24. febrúar 2017. Ef framangreindu
hámarki verður náð fyrir þau tímamörk fellur endurkaupaáætlunin úr gildi.

Framkvæmd   endurkaupaáætlunarinnar  er  í  samræmi  við  VIII.  kafla  laga  um
hlutafélög nr. 2/1995.


[]