2011-06-07 17:49:34 CEST

2011-06-07 17:50:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

CORRECTION: Útboð ríkisvíxla RIKV 11 0915 og RIKV 11 1215


Föstudaginn 10. júní kl: 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 11 0915 og RIKV 11 1215 sem eru með gjalddaga 15.
september og 15. desember 2011. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 15. júní 2011.

Sótt verður um að RIKV 11 1215 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi fimmtudaginn 16. júní 2011.