|
|||
2012-02-24 11:42:35 CET 2012-02-24 11:43:36 CET REGULATED INFORMATION H S Veitur hf. - ÁrsreikningurÁrsreikningur árið 2011Ársreikningur HS Veitna hf. var samþykktur á fundi stjórnar í dag, 24. febrúar 2011. Heildarhagnaður ársins 2011 nam 270 m.kr. á móti hagnaði upp á 321 m.kr. 2010. Fjárhagsstaða er sterk og horfur góðar. Eiginfjárhlutfall í árslok 2011 var 53,0% sama og í árslok 2010. Veltufjárhlutfall var í lok ársins 2,87 samanborið við 2,53 í árslok 2010. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) lækkar milli ára, EBITDA árið 2011 var 1.401 m.kr. (31,6%) á móti 1.420 m.kr. árið 2010 (33,7%). |
|||
|