2010-08-31 11:10:02 CEST

2010-08-31 11:11:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - Ársreikningur

Leiðrétting - Árshlutareikningur fyrir tímabilið 1. janúar - 30. júní 2010 - Frétt birt 2010-08-31 10:57:38


Leiðrétting: Viðhengi í fyrri frétt voru ekki rétt.

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er
breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk
sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni
sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins
flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500
millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti.
Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem
sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun
hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir
hönd  sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu
lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í
afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til
skuldareigenda. Þann 30.júní 2010 námu eftirstöðvar lánsins 268,8 millj. kr. og
eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. 

Tekjuafgangur sambandsins á tímabilinu 1/1 - 30/6 2010 nam um 540 þúsundum kr.
og eigið fé þann 30/6 2010 nam 40,9 milljónum kr. samkvæmt árshlutareikningi.
Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur
sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í 
skilum.

Berglind Kristinsdóttir er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á
Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.