|
|||
![]() |
|||
2016-04-27 18:45:10 CEST 2016-04-27 18:45:10 CEST REGULATED INFORMATION Rangárþing ytra - ÁrsreikningurÁrsreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2015Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2015 er lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn miðvikudaginn 27. apríl 2016 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög. Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, það er A og B hluta sbr. 60 gr. sveitastjórnarlaga nr. 138/2011. Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita, Húsakynni b.s. og Suðurlandsvegur 1-3 ehf. Samkvæmt rekstrarreikningi 2015 námu rekstrartekjur A og B hluta 1431 millj. kr. samanborið við 1.360,7 millj. kr. árið 2014. Hækkun milli ára er 5,1%. Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 1.183 millj.kr., en voru 1.096,2 millj. kr. á árinu 2014. Hækkun frá fyrra ári nemur 7,9%. Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2015 námu 76 millj. kr. samanborið við 79 millj. kr. árið 2015. Rekstrarniðurstaða ársins er því jákvæð um 100,4 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við 109 millj. kr. á árinu 2014. |
|||
|