|
|||
2010-05-12 16:31:34 CEST 2011-09-16 12:25:31 CEST REGULATED INFORMATION Hampiðjan hf. - Notice to convene ext. general meeting (is)Aðalfundur verður haldinn föstudaginn 21. maí og hefst kl. 16:00Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 21. maí 2010 og hefst kl. 16:00. Á dagskrá fundarins verða: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins 2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga 3. Önnur mál, löglega upp borin Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað. Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar. Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega. |
|||
|