2012-03-22 17:43:03 CET

2012-03-22 17:44:04 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Félagsbústaðir hf. - Ársreikningur

Ársuppgjör Félagsbústaða hf. fyrir árið 2011


Félagsbústaðir, sem eru hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar, eiga og reka
félagslegt leiguhúsnæði sem úthlutað er af Velferðarsviði Reykjavíkurborgar.
Markmið félagsins er að starfa í þágu almannaheilla og skal rekstur þess vera
sjálfbær. 



Rekstur og afkoma

Rekstrartekjur Félagsbústaða hf. á árinu 2011  námu 2.546 millj.kr., sem er 6%
aukning tekna frá árinu á undan aðallega vegna verðlagshækkunar leigu. 

Rekstrargjöld hækkuðu milli ára um 8% en af einstökum rekstrarþáttum hækkaði
viðhaldskostnaður um tæp 6% en framlag til afskrifta leiguskulda hækkaði um 11%
og hefur þessi gjaldfærsla hækkað úr 1,5% af leigutekjum árið 2008 í 3,8% árið
2011, eða úr 30 millj.kr. í 96 millj.kr.  Rekstrarhagnaður fyrir
fjármagnskostnað og matsbreytingu fjárfestingaeigna jókst um 4% milli ára og
nam 1.178 millj.kr. eða 46% af leigutekjum  en var 47% árið á undan. 

Fjármagnskostnaður hækkaði um 86% milli ára, eða úr 1.175 millj.kr. árið 2010 í
2.183 millj.kr. árið 2011. Þessi umtalsverða hækkun fjármagnskostnaðar stafaði
annarsvegar af hækkun verðtryggðra lána á árinu 2011 og hinsvegar af
gengishagnaði og höfuðstólslækkun erlendra lána sem gerð voru upp í lok ársins
2010. 

Á árunum 2008-2010 nam niðurfærsla á fasteignamati fjárfestingaeigna samtals
tæpum 4 milljörðum kr., en sú niðurfærsla gekk að mestu leiti til baka á árinu
2011 með 3,9 milljarða kr. hækkun á matsvirði þessara eigna samfara auknum
umsvifum á húsnæðismarkaði á árinu 2011. 

Hagnaður ársins 2011 nam því 2,9 milljörðum kr. á árinu 2011 miðað við 1,9
milljarða tap árið á undan. 

Veltufjármyndun rekstrar nam 292 millj.kr. á árinu 2011 og handbært fé frá
rekstri 334 millj.kr. 



Efnahagur

Heildareignir Félagsbústaða hf. í árslok 2011 námu 36,6 milljörðum.kr., en
leiguíbúðir félagsins eru metnar samkvæmt fasteignamati sem er gangverð
umreiknað til staðgreiðslu í febrúar ár hvert ásamt verðþróun samkvæmt vísitölu
fasteignaverðs til ársloka 2011. 

Eigið fé í árslok 2011 nam 8,7 milljörðum.kr. og hefur hækkað um 3
milljarða.kr. milli ára. Eiginfjárhlutfall var 24% í árslok 2011 miðað við 18%
árið 2010. 



Kaup og sala íbúða

Á árinu 2011 voru keypt 19 sambýli með samtals 66 litlum íbúðum af
Fasteignasjóði Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í tengslum við flutning á málefnum
fatlaðs fólks frá ríki til sveitarfélaga en auk þess voru keyptar 4 íbúðir og
12 seldar  á almennum markaði. Fjölgun íbúða nam því samtals 57 íbúðum á árinu
og heildarfjöldi íbúða 2208  talsins í árslok 2011. 



Horfur

Stóraukið framboð íbúða á almennum leigumarkaði í ársbyrjun 2009 leiddu til
lækkunar á leiguverði sem hefur síðan farið hækkandi með auknum umsvifum á
húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverð hjá Félagsbústöðum hækkaði
samkvæmt verðlagi um 5,3% á árinu 2011 en samkvæmt nýrri vísitölu leiguverðs á
höfuðborgarsvæðinu sem Þjóðskrá Íslands hefur nýverið kynnt hækkaði leiguverð á
almennum leigumarkaði um 11% á sama tíma, eða rúmlega tvöfalt meira en
leiguverð hjá Félagsbústöðum. Gera má ráð fyrir að á yfirstandandi ári dragi
enn frekar úr framboði á leigumarkaði í Reykjavík með tilheyrandi hækkunum á
leiguverði og útlit fyrir að aukin eftirspurn verði eftir félagslegu
leiguhúsnæði í kjölfarið nema áform um eflingu leigumarkaðarins gangi eftir með
auknum stuðningi í formi húsnæðisbóta og stofnun öflugra leigufélaga. 



Sjá viðhengi.