|
|||
2014-11-27 14:00:00 CET 2014-11-27 14:00:03 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - ÁrsreikningurReykjavíkurborg árshlutareikningur janúar - september 2014Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til september 2014 var staðfestur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 27. nóvember. Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um 11.085 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 6.063 mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 5.022 mkr betri en gert var ráð fyrir. Helstu ástæður má rekja annars vegar til tekjufærslu matsbreytinga fjárfestingaeigna hjá Félagsbústöðum og hins vegar til áhrifa fjármagnsgjalda hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þar vegur þyngst gengismunur og verðmæti innbyggðra afleiða. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 13.260 mkr sem er 288 mkr lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir. Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok september samtals 492.443 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 286.716 mkr og eigið fé nam 205.726 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 10.824 mkr. Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 377 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 192 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því lakari en gert var ráð fyrir, sem nemur 569 mkr. Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 272 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 416 mkr eða 688 mkr lakari en áætlun gerði ráð fyrir. Lakari rekstrarniðurstaða skýrist meðal annars af minni tekjum af sölu byggingaréttar en áætlun gerði ráð fyrir og af tapi af sölu fasteigna sem ekki var áætlað fyrir. Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf. Breytt uppgjör Orkuveitu Reykjavíkur. Þann 1. janúar 2014 kom til framkvæmda það ákvæði raforkulaga sem gerir fyrirtækjum á þeim markaði skylt að skilja á milli sérleyfis- og samkeppnishluta starfseminnar. Um áramótin tók Orka náttúrunnar ohf., dótturfélag sem er alfarið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, til starfa á samkeppnismarkaði raforku en félagið var stofnað til að uppfylla þetta lagaákvæði. Veituþjónustan verður áfram rekin undir merkjum Orkuveitu Reykjavíkur, bæði þau lögbundnu skylduverkefni sveitarfélaga sem vatns- og fráveita eru og sérleyfisþjónusta rafmagns- og hitaveitu. Í móðurfélagi breyttrar samstæðu, Orkuveitu Reykjavíkur, verður sameignleg stoðþjónusta við dótturfélög s.s. fjármál, gæða, umhverfis- og öryggismál auk sameiginlegs þjónustusviðs. Reykjavík, 27. nóvember 2014. Nánari upplýsingar veitir Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321 |
|||
|