2013-05-30 17:55:17 CEST

2013-05-30 17:56:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf. hyggst selja allt að 25% eignarhlut í Regin hf.


Eignarhaldsfélag Landsbankans ehf., sem er í eigu Landsbankans hf., hefur
ákveðið að bjóða til sölu 325.000.000 hluti í Regin hf., sem samsvarar 25% af
útgefnum hlutum í félaginu. Um er að ræða þegar útgefin bréf í Regin hf. í eigu
Eignarhaldsfélags Landsbankans ehf. Útgefnir hlutir í Regin hf. eru samtals
1.300.000.000 og er hver hlutur 1 kr. að nafnverði. 

Markaðsviðskipti Landsbankans hf. hafa umsjón með sölu hlutanna. Ekki verður
gefin út lýsing vegna útboðsins í samræmi við undanþáguheimild c-liðar, 1.
töluliðar, 1. málsgreinar 50. greinar laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. 

Tilboðsgjafar skulu að lágmarki bjóða í 2.000.000 hluti í Regin hf. en
lágmarksgengi í útboðinu verður 12,00 krónur á hlut. 

Útboðsfyrirkomulag verður með þeim hætti að öll samþykkt tilboð miðast við það
gengi sem tilboðsgjafi tilgreinir í tilboði sínu. Nánari útboðsskilmálar, ásamt
tilboðseyðublöðum, verða aðgengilegir hjá Markaðsviðskiptum Landsbankans hf.
eftir lokun viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. („Kauphöllin“) í
dag, fimmtudaginn 30. maí 2013. 

Tekið verður við tilboðum miðvikudaginn 5. júní 2013, frá kl. 10:00 (GMT), en
tilboðsfrestur rennur út kl. 16:00 (GMT) sama dag. Niðurstöður útboðsins verða
birtar í Kauphöll að loknu útboði. 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi Þór Arason, forstöðumaður Markaðsviðskipta Landsbankans hf. Sími: 410 7335