|
|||
2010-11-03 16:20:35 CET 2010-11-03 16:21:35 CET REGULATED INFORMATION Reykjaneshöfn - FyrirtækjafréttirTilkynning um breytingu á tillögu til lánveitenda og eigenda fjármálagerninga sem útgefnir eru af ReykjaneshöfnÍ samráði við kröfuhafa hefur Reykjaneshöfn ákveðið að breyta áður tilkynntri tillögu sinni þannig að frestur kröfuhafa til að samþykkja hana er lengdur og verður til og með 30. nóvember 2010 (var til og með 17. nóvember 2010). Af þessu leiðir að Reykjaneshöfn mun tilkynna um afdrif tillögunnar þann 1. desember 2010 (var 18. nóvember 2010). Þá er að ósk kröfuhafa bætt inn í tillöguna ákvæði þess efnis að allir kröfuhafar hafi rétt til gjaldfellingar krafna sinna þann 1. maí 2011 ef ekki tekst að koma fjármálum Reykjaneshafnar í viðundandi horf fyrir þann tíma. Nánari upplýsingar veitir Pétur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Atvinnu- og hafnarsviðs Reykjanesbæjar í síma 420-3222. |
|||
|