|
|||
2014-04-29 20:59:51 CEST 2014-04-29 21:00:53 CEST REGULATED INFORMATION Sjóvá-Almennar tryggingar hf - Niðurstöður hluthafafundaSjóvá; Ný stjórn kjörin á aðalfundi Sjóvá-Almennra trygginga hf.Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Sjóvá-Almennra trygginga hf. þann 29. apríl 2014. Stjórnina skipa Erna Gísladóttir, Heimir V. Haraldsson, Hjördís E. Harðardóttir, Ingi Jóhann Guðmundsson og Tómas Kristjánsson. Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar sem haldinn var að loknum aðalfundinum var Erna Gísladóttir kjörin formaður stjórnar og Tómas Kristjánsson varaformaður. Í varastjórn félagsins voru kjörin Anna Guðmundsdóttir, Erna Hlíf Jónsdóttir, Garðar G. Gíslason, Jón Diðrik Jónsson og Leifur A. Haraldsson. Í viðhengi er að finna samantekt á helstu niðurstöðum fundarins og ársskýrslu félagsins vegna ársins 2013. |
|||
|