|
|||
2009-08-31 15:45:22 CEST 2009-08-31 15:46:23 CEST REGULATED INFORMATION Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum - Ársreikningur- 6 mánaða uppgjör 2009Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500 millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti. Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til skuldareigenda. Í lok júní 2009 námu eftirstöðvar lánsins 325 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. Tekjuafgangur sambandsins á tímabilinu 1/1-30/6 2009 nam um 7,2 milljónum kr. og eigið fé í lok júní 2009 nam 70,4 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. Guðjón Guðmundsson er framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu. |
|||
|