|
|||
2008-07-29 06:29:00 CEST 2008-07-29 06:29:45 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrshlutareikningarÖssur hf. - Uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2008Helstu niðurstöður fyrir annan ársfjórðung 2008 * Sala var 92,9 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 6% frá sama tímabili 2007. * EBITDA var 19 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 10% frá sama tímabili 2007. * EBITDA hlutfall var 20,5%, samanborið við 19,7% á sama tíma í fyrra. * Hagnaður tímabilsins var 3,9 milljónir Bandaríkjadala, samanborið við 1,5 milljónir á sama tímabili 2007. * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu tilliti til kauprétta var 2,42 bandarísk sent, jókst um 25% frá sama tímabili 2007. * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 0,93 bandarísk sent, jókst um 138% frá sama tímabili í fyrra. Helstu niðurstöður fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008 * Sala var 182,6 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 8% frá sama tímabili 2007. * EBITDA var 42 milljónir Bandaríkjadala, jókst um 52% frá sama tímabili 2007. * EBITDA hlutfall var 23,0%, samanborið við 16,4% á sama tímabili 2007. * Hagnaður tímabilsins var 10,6 milljónir Bandaríkjadala, samanborið við 1,2 milljón dala tap á sama tímabili 2007. * Hagnaður að viðbættum afskriftum á útistandandi hlut að teknu tilliti til kauprétta var 5,39 bandarísk sent, jókst um 90% frá sama tímabili í fyrra. * Hagnaður á hlut að teknu tilliti til kauprétta var 2,51 bandarísk sent, samanborið við -0,32 á fyrri hluta ársins 2007. Jón Sigurðsson, forstjóri:"Helstu áherslur ársins 2008 eru að auka arðsemi og að hagræða í vörulínum fyrirtækisins. Okkur hefur tekist að auka arðsemi félagsins talsvert á fyrstu sex mánuðum ársins þrátt fyrir slaka sölu á öðrum ársfjórðungi. Óvenju fáar vörur hafa verið markaðssettar á fyrstu sex mánuðum ársins, en von er á áhugaverðum nýjum vörum sem og endurbættum vörum á seinni hluta ársins." Live comments form the CEO, see link here below: www.ossur.com/ceocomments |
|||
|