|
|||
2008-10-31 17:10:15 CET 2008-10-31 17:11:16 CET REGULATED INFORMATION Hagar hf. - Ársreikningur- Árshlutareikningur 31. ágúst 2008Árshlutareikningur félagsins hefur að geyma samandreginn samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess. Hann var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins 31. október 2008. Árshlutareikningur félagsins er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Lykiltölur í millj. kr. - samstæða • Tap tímabilsins 1. mars til 31. ágúst 2008 nam 1.409 millj. kr. en hagnaður fyrir sama tímabil árið áður nam 715 millj. kr. • Rekstrartekjur tímabilsins 1. mars til 31. ágúst 2008 námu 29.351 millj. kr. en námu 25.474 millj. kr. fyrir sama tímabil árið áður. • Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 28.579 millj. kr. en námu 27.995 millj. kr. í febrúarlok 2008. • Eigið fé félagsins í lok tímabilsins nam 6.687 millj. kr. en nam 8.808 millj. kr í febrúarlok 2008. • Eiginfjárhlutfall félagsins var 23,4% Fyrirtæki Haga eru eftirfarandi: Bónus Debenhams Hagkaup Ferskar kjötvörur 10-11 Noron (Zara) Aðföng Íshöfn Hýsing Bananar Útilíf Hlutdeildarfélög eru: Max og SMS p/f Stöðugildi hjá félaginu í lok tímabilsins námu 1.550. Staða og horfur Mikil óvissa ríkir um vöruöflun verslunarfyrirtækja á Íslandi í dag, þ.m.t. aðföng til verslana Haga. Gjaldeyrir er af skornum skammti, auk þess sem almenn milliríkjaviðskipti og greiðsluflæði á milli landa er í ólestri. Viðskiptasambönd Haga hafa beðið hnekki sökum efnahagsástands hér á landi undanfarnar vikur. Félagið vinnur nú að samningum um vörukaup, m.a. í gegnum verslunarfyrirtæki Baugs erlendis. Félagið mun leggja höfuðáherslu að tryggja viðskiptavinum sínum matvörur og aðrar nauðsynjavörur og koma þar með í veg fyrir vöruskort. Óstöðugleiki íslensku krónunnar og mikil verðbólga hefur mikil neikvæð áhrif á rekstur Haga. Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins í síma 530 5500 |
|||
|