2010-02-01 17:50:30 CET

2010-02-01 17:51:30 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Skipti hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Rannveig Rist formaður stjórnar Skipta


Rannveig Rist hefur tekið við formennsku í stjórn  Skipta hf. Þetta var ákveðið
á fundi stjórnar Skipta fyrr í dag. Með formennsku Rannveigar er tryggð
samfelldni í stjórn fyrirtækisins en hún hefur mikla reynslu og þekkingu á
rekstri þess. Rannveig hefur setið í stjórn Skipta og Símans frá árinu 2002
þegar fyrirtækið var í eigu íslenska ríkisins. Hún var formaður stjórnar frá
2002 til 2005 en hefur síðan verið varaformaður stjórnar. Lýður Guðmundsson
lætur nú af formennsku en mun sitja áfram í stjórn Skipta.