|
|||
2010-07-27 06:00:00 CEST 2010-07-27 06:01:51 CEST SÄÄNNELTY TIETO Össur hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.Uppgjör Össurar - annar ársfjórðungur 2010Fréttatilkynning frá Össuri hf. nr. 19/2010 Reykjavík, 27. júlí 2010 MIKIL SÖLUAUKNING Sala - Sala jókst talsvert á öðrum ársfjórðungi eða um 12%, mælt í staðbundinni mynt. Salan nam alls 90 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 81 milljón dala á öðrum ársfjórðungi í fyrra. Sala jókst í báðum stærstu vöruflokkum félagsins, stoðtæki um 15% og spelkur og stuðningsvörur um 11%. Arðsemi - Össur sýnir áfram góðan hagnað. EBITDA nam 20 milljónum Bandaríkjadala eða 22% af sölu og framlegðin nam 56 milljónum dala eða 62% af sölu. Framlegð er stöðug og aukin arðsemi er til komin vegna aukinnar sölu. Hagnaður á tímabilinu nam 14 milljónum Bandaríkjadala samanborið við 2 milljónir dala á sama tímabili í fyrra. Gengishagnaður á fjármagnsliði hefur mikil jákvæð áhrif á hagnað. Jón Sigurðsson, forstjóri:"Árangurinn á öðrum ársfjórðungi var mjög góður á öllum mörkuðum og vöxtur í helstu vöruflokkum. Nýjum spelkum og stuðningsvörum var vel tekið á fyrri helmingi ársins og það á sinn þátt í aukinni sölu. Sala á stoðtækjum hefur gengið vel og aukist í öllum vörulínum. Sala á hátæknivörunum gengur áfram vel." Helstu áfangar á öðrum fjórðungi: * Góð frammistaða í spelkum og stuðningsvörum - Sala á spelkum og stuðningsvörum var mjög góð í Bandaríkjunum á öðrum ársfjórðungi. Annan ársfjórðunginn í röð gengur mjög vel í Bandaríkjunum og er söluaukning yfir markaðsvexti. Söluaukning á spelkum og stuðningsvörum hjá EMEA var í takt við markaðsvöxt. * Vöxtur í öllum stoðtækjavörulínum - Sala á stoðtækjum gengur áfram mjög vel, bæði í Bandaríkjunum og hjá EMEA, og hefur aukist umfram markaðsvöxt. Sala á hátæknivörunum nam 15% af sölu stoðtækja á fjórðungnum. Gert er ráð fyrir að vöxturinn verði ekki eins mikill á seinni hluta ársins. Áætlun - Stjórnendur gera ráð fyrir að söluaukning verði í efri mörkum eða jafnvel aðeins yfir fyrri áætlun, sem gerði ráð fyrir 4-6% innri vexti á árinu, mælt í staðbundinni mynt. Gert er ráð fyrir innri EBITDA vexti yfir 10%, mælt í staðbundinni mynt. Símafundur kl. 10:00 þriðjudaginn 27. júlí Í dag, þriðjudaginn 27. júlí, verður haldinn símafundur fyrir fjárfesta, hluthafa og aðra markaðsaðila þar sem farið verður yfir niðurstöður 2. ársfjórðungs 2010. Fundurinn hefst kl. 10:00 GMT / 12:00 CET / 6:00 EST. Á fundinum munu þeir Jón Sigurðsson, forstjóri, og Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri, kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Fundurinn fer fram á ensku og verður hægt að fylgast með honum á netinu á slóðinni www.ossur.com/investors Símanúmer til að taka þátt í fundinum eru: Evrópa: + 44 (0) 20 3043 2436 eða +46(0)8 505 598 53 Bandaríkin: +1 866 458 40 87 Ísland: 800 8660 Nánari upplýsingar: Jón Sigurðsson, forstjóri sími: 515-1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: 515-1300 Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill sími: 664-1044 Vinsamlega athugið að þetta yfirlit nær aðeins yfir helstu þætti uppgjörsins. Tilkynningu í fullri lengd á ensku er að finna áwww.ossur.com/investors [HUG#1434128] |
|||
|