2013-05-23 11:40:36 CEST

2013-05-23 11:41:37 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Hluthafafundir

Hluthafafundur Vátryggingafélags Íslands hf. 30. maí 2013


Endanleg dagskrá

Hluthafafundur í Vátryggingafélagi Íslands hf. verður haldinn fimmtudaginn 30.
maí 2013. 

Fundurinn fer fram á Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38, 105 Reykjavík, í
fundarsalnum Hvammi á 1. hæð og hefst hann stundvíslega kl. 16:00. 

Endanleg dagskrá fundarins er svohljóðandi:

1. Kosning stjórnar

2. Önnur mál

Varðandi framboð til stjórnar bendir stjórn félagsins á að undirrituðu
framboðseyðublaði ber að skila í síðasta lagi fimm dögum fyrir hluthafafund.
Eyðublað vegna framboðs til stjórnar má finna á vefsíðu félagsins,
www.vis.is/fjarfestar/hluthafafundir. Senda skal undirritað framboðseyðublað á
tölvupóstfangið stjorn@vis.is eða skila á skrifstofu félagsins að Ármúla 3 í
Reykjavík fyrir fyrrgreindan tíma. 

Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða lagðar fram hluthöfum til sýnis
á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund.
Upplýsingarnar verða auk þess aðgengilegar á vefsíðu félagsins,
www.vis.is/fjarfestar/hluthafafundir.