2009-06-02 11:58:37 CEST

2009-06-02 11:59:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir

Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. frestar birtingu ársreiknings fyrir árið 2008



2. júní 2009

Þann 9. mars tók Fjármálaeftirlitið yfir vald hluthafafundar
Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf.  (Straumur), vék stjórn
bankans frá störfum og skipaði Straumi skilanefnd sem tók við öllum
heimildum stjórnar félagsins.
Nýr forstjóri Straums var ráðinn til starfa þann 17 mars. Þann 19.
mars veitti Héraðsdómur Reykjavíkur Straumi heimild til
greiðslustöðvunar sem gildir til  11. júní 2009, sbr. tilkynningu frá
Straumi þann 19. mars.
Endurskipulagning Straums stendur nú yfir og hefur framkvæmdastjórn
bankans fundað með lánveitendum í þeim
tilgangi að endurskipuleggja rekstur félagsins og koma nýrri skipan á
fjármál þess, sbr.tilkynningar frá Straumi 30.mars og 17. apríl s.l.

Vegna stöðu Straums er vinnu við gerð ársreiknings fyrir árið 2008
ekki lokið og því ekki unnt að birta ársreikninginn opinberlega enn
um sinn.

Nánari upplýsingar veitir:
Georg Andersen
Forstöðumaður Samskiptasviðs
Sími: 585 6707
georg@straumur.com