|
|||
![]() |
|||
2010-07-09 13:45:52 CEST 2010-07-09 13:46:49 CEST REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414 og RIKB 25 0612Útboð á ríkisbréfum í flokki RIKS 21 0414 og RIKB 25 0612 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKS 21 0414: Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.580 m.kr. að nafnverði. 16 tilboðum var tekið fyrir 3.730 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,150 (3,55% ávöxtunarkröfu). RIKB 25 0612: Alls bárust 25 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.895 m.kr. að nafnverði. 13 tilboðum var tekið fyrir 4.145 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 117,4 (6,18% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 13. júlí. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 14. júlí 2010. |
|||
|