2012-06-04 13:41:39 CEST

2012-06-04 13:42:40 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Hluthafafundir

LEIÐRÉTTING: AÐALFUNDUR 8. JÚNÍ 2012 - FRÉTT SEND: 2012-05-24 17:26:27 CET


UPPLÝSINGAR UM ARÐGREIÐSLUTILLÖGU

Leiðrétting: Upplýsingar um arðsréttindadag. Dagskrárliður 4 um ráðstöfun
hagnaðar birtur í heild sinni að nýju. 

Stjórn Haga hf. leggur til við aðalfund að greiddur verði arður til hluthafa
vegna reikningsársins 2011/12 sem nemur 0,45 krónum á hlut, eins og fram kemur
í ársreikningi félagsins. Heildararðgreiðslan nemur því tæpum 530 milljónum
króna. 

Samþykki aðalfundur tillöguna skal arðsréttindadagur vera 13. júní 2012.
Arðleysisdagur, þ.e. sá dagur sem viðskipti hefjast með bréf félagsins án
réttar til arðs vegna reikningsársins 2011/12 verður því 11. júní 2012, eða
næsti viðskiptadagur eftir aðalfund. Útborgunardagur arðgreiðslu verður 27.
júní 2012.