|
|||
2011-02-24 10:39:45 CET 2011-02-24 10:40:50 CET REGULATED INFORMATION Glitnir sjóðir - ÁrsreikningurÍslandssjóðir hf. - Ársuppgjör 2010Afkoma Íslandssjóða hf. árið 2010 -- Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning Íslandssjóða hf. og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. -- Hagnaður Íslandssjóða hf. eftir skatta árið 2010 nam 259 m.kr. samanborið við 269m.kr. árið 2009. -- Hreinar rekstrartekjur námu 1.015 m.kr. samanborið við 1017 m.kr. árið áður. -- Rekstrargjöld námu 699 m.kr. samanborið við 700 m.kr. árið áður. -- Heildareignir félagsins námu 2.986 m.kr. í árslok 2010 en voru 3.074 m.kr. í ársbyrjun. -- Eigið fé í árslok 20010 nam 1.559 m.kr.en var 1.301 m.kr. í ársbyrjun. -- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 163,7% í árslok 2010 en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%. -- Í lok desember 2010 voru 16 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 115.607 milljónum króna. Einn sjóður sem er skráður í Lúxemborg er í stýringu -- Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var 10.547 m.kr. árið 2010 samanborið við tap uppá 2.124 m.kr. árið 2009. -- Mikil áhersla hefur verið lögð á viðskipta- og vöruþróun og mun því starfi verða haldið áfram á árinu 2011. Nýjum sjóðum félagsins hefur verið mjög vel tekið, en vel yfir 10 þúsund fjárfestar eiga hlutdeildarskírteini í sjóðum Íslandssjóða. -- Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af Deloitte hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2010. -- Í lok desember 2010 störfuðu 13 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdarstjóri félagsins er Agla Elísabet Hendriksdóttir. Lykiltölur í m.kr:: Sjá fréttatilkynningu í viðhengi.. Nánari upplýsingar um ársreikning Íslandssjóða hf. veitir Agla Elísabet Hendriksdóttir, framkvæmdastjóri félagsins í síma 440-4917. |
|||
|