|
|||
2008-02-13 17:40:56 CET 2008-02-13 17:41:58 CET REGULATED INFORMATION FL GROUP hf. - ÁrsreikningurTap FL Group 67 milljarðar króna á árinu 2007- Miklar sveiflur á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum einkenna afkomu - -Fjárhagslegur styrkur samstæðunnar og rekstur kjarnaeigna sterkur- - Markaðsáhætta minnkuð verulega á fjórðungnum- Helstu fjárhagsleg atriði: Tap FL Group á árinu 2007 nam 67,3 milljörðum króna og var 63,2 milljarðarkróna á fjórða ársfjórðungi. Allar skráðar eignir félagsins eru færðar á markaðsvirði. Heildareignir jukust um 60,7% á árinu og námu 422,3 milljörðum króna. Tryggingamiðstöðin kemur inn í samstæðureikning félagsins frá og með 1. október og er því hluti af efnahagsreikningi félagsins í lok árs. Eigið fé var 155,8 milljarðar króna í lok árs, sem er aukning um 13,2 milljarða króna frá árslokum 2006. Aukningin skýrist m.a. af hlutafjáraukningu í tengslum við kaup félagsins á Tryggingamiðstöðinni og fasteignafélögum af Baugi Group á síðari hluta ársins. Eiginfjárhlutfall í lok árs var 36,9% og lausafjárstaða í formi handbærs fjár og ógreiddra hlutafjárloforða sem kom til greiðslu 4. janúar, var 28,6 milljarðar króna, sem endurspeglar fjárhagslegan styrk félagsins. Við birtingu ársreiknings hefur FL Group endurfjármagnað andvirði 47,1 milljarða króna af lánum með gjalddaga árið 2008 en eftir standa um 8,5 milljarðar. Í ljósi markaðsaðstæðna á fjórða ársfjórðungi voru óskráðar eignir félagsins færðar niður sem nemur 3,7 milljarða. Hár rekstrarkostnaður á fjórðungnum skýrist m.a. af kostnaði vegna fjárfestingaverkefna, einskiptiskostnaði vegna stjórnendabreytinga og bókfærðum kostnaði vegna kaupréttarsamninga starfsmanna. Helstu atriði úr rekstri félagsins: Kaup á fasteignafélögum frá Baugi Group fyrir 53,7 milljarða króna, fjármögnuð með útgáfu nýs hlutafjár. Eignarhlutur í Tryggingamiðstöðinni aukinn í 99,1% og félagið hluti af samstæðureikningi FL Group. Jón Sigurðsson skipaður forstjóri félagsins. Lagst í umfangsmikla skipulagsbreytingar á félaginu, markaðsáhætta minnkuð og Kaupmannahafnarskrifstofu lokað. Eignir voru seldar til að minnka markaðsáhættu og tryggja fjárhagslegan styrk félagsins. Markaðsáhætta í félögum tengdum flugrekstri var stórlega minnkuð með sölu á hlutum í AMR og Finnair fyrir um 35,2 milljarða króna. Vægi fjármálatengdra fjárfestinga, sem ekki teljast til kjarnafjárfestinga, var minnkuð með sölu á hlut í Commerzbank á fjórðungnum fyrir um 20,7 milljarða króna. Á fyrsta ársfjórðungi hafa til viðbótar verið seld bréf í bankanum fyrir um 34 milljarða króna. Auk þess var eignasafn undir Markaðsviðskiptum minnkað um 29,0 milljarða til viðbótar á fjórðungnum. Eignasafn FL Group er nú vel dreift með kjarnafjárfestingar í fjármála- og tryggingafélögum og fasteignafélögum, en stjórnendur félagsins telja mikil tækifæri innan þessara atvinnugreina til framtíðar. Einnig liggja mikil tækifæri í óskráðum eignum félagsins. Kjarnaeignir FL Group eru í Glitni banka, Tryggingamiðstöðinni og Landic Property og mun félagið halda áfram að vinna með stjórnendum þessara félaga og styðja framtíðarvöxt þeirra og arðsemi. FL Group hefur selt 43,1% eignarhlut sinn í Geysir Green Energy til Glitnis banka, Atorku Group, og fleiri aðila. Söluverðið er um 10,5 milljarðar króna og nemur áður bókfærður gengishagnaður FL Group um 3 milljörðum króna sem jafngildir um 40% hækkun á fjárfestingu í félaginu. Gengið hefur verið frá sölu á erlendum fasteignasjóðum til Landic Property fyrir 20,6 milljarða króna, í samræmi við fyrirætlanir sem kynntar voru í desember sl. Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group: “Órói á erlendum fjármálamörkuðum á síðari hluta ársins 2007 hafði mikil og bein áhrif á okkar afkomu þar sem verðmæti allra okkar helstu eigna hefur lækkað umtalsvert. Við teljum hinsvegar að rekstur okkar kjarnaeigna standi vel og að FL Group geti staðið af sér frekari óróa á markaði og í framhaldinu skoðað áhugaverð tækifæri. Við höfum brugðist hratt við breyttum aðstæðum á mörkuðum og markvisst minnkað markaðsáhættu félagsins í hlutabréfum, ásamt því að auka hlutafé félagsins. Jafnframt höfum við lokað skrifstofu okkar í Kaupmannahöfn og er það liður í lækkun rekstrarkostnaðar félagsins. Með endurfjármögnun undanfarinna vikna, ásamt framangreindum aðgerðum höfum við staðið vörð um fjárhagslegan styrk félagsins.“ Afkoma FL Group á fjórða ársfjórðungi og árinu 2007 Fjárfestingatekjur FL Group koma frá þremur tekjusviðum: FIG, Private Equity og Capital Markets. FIG sér um stefnumarkandi fjárfestingar í bönkum, tryggingafélögum og öðrum fjármálafyrirtækjum og fellur eignarhlutur í Tryggingamiðstöðunni þar undir. Private Equity ber ábyrgð á safni skráðra og óskráðra fjárfestinga.. Capital Markets (Markaðsviðskipti) sér um fjárfestingar í skráðum félögum auk þess að stýra afleiðuviðskiptum og áhættustýringu félagsins meðal annars með kaupum á vörnum. Sviðið sér einnig um að byggja upp og losa um stöður í skráðum félögum fyrir hönd FIG og Private Equity. |
|||
|