|
|||
2011-06-30 15:21:33 CEST 2011-06-30 15:22:34 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - ÁrsreikningurLeiðrétting: Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - mars 2011. Frétt birt 2011-06-30 15:04:27Leiðrétting: frétt fór undir rangan fréttaflokk. Óendurskoðaður árshlutareikningur A hluta Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar - mars 2011 var lagður fram í borgarráði 30. júní 2011. Til A hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Í fjárhagsáætlun fyrir tímabilið janúar - mars 2011 fyrir A hluta var gert ráð fyrir því að niðurstaða fyrir fjármagnsliði yrði neikvæð um 637 milljónir króna og rekstrarniðurstaða tímabilsins neikvæð um 685 milljónir króna. Samkvæmt árshlutareikningnum er niðurstaða A hluta fyrir fjármagnsliði neikvæð um 672 milljónir króna og rekstrarniðurstaða neikvæð um 789 milljónir króna. Reykjavík 30. júní 2011. |
|||
|