|
|||
![]() |
|||
2016-05-30 16:41:57 CEST 2016-05-30 16:41:57 CEST SÄÄNNELTY TIETO Hafnarfjarðarkaupstaður - FyrirtækjafréttirPwC minnisblað vegna vaxtabreytinga HFJ 14126. maí 2016 HFJ 14 1: Aðferð við útreikninga vaxta vegna óuppfylltra fjárhagslegra skilyrða PwC vill benda á misræmi í aðferðafræði okkar og útgefanda við útreikning á þeirri fjárhæð sem er til greiðslu vegna skuldabréfaflokksins HFJ 14 1. Við yfirferð okkar á ársreikningi útgefanda vegna ársins 2015 og staðfestingu greiðslu til skuldabréfaeigenda þann 20. nóvember 2015 vöknuðu spurningar um aðferðafræði við útreikninga. Í samræmi við þjónustusamning PricewaterhouseCoopers ehf. ("PwC") við Hafnarfjarðarkaupstað, undirritaður 22. maí 2014, um hlutverk eftirlitsaðila vegna skuldabréfaflokksins HFJ 14 1 skal eftirlitsaðili staðfesta og kanna sjálfstætt útreikning útgefanda (Hafnarfjarðarkaupstaðar) á fjárhagslegum skilyrðum og kanna sjálfstætt greiðslur af skuldabréfunum á hverjum gjalddaga. Samkvæmt útgáfulýsingu bera skuldabréfin 3,75% fasta flata vexti en standist útgefandi á einhverjum tímapunkti ekki framangreind fjárhagsleg skilyrði skulu vextir skuldabréfaflokksins hækka um 0,5% frá fyrsta vaxtadegi eftir að slíkt liggur fyrir til næsta vaxtadags eftir að nýr ársreikningur, árshlutareikningur eða endurskoðandi útgefanda staðfestir að skilyrðin séu aftur uppfyllt. Útgefandi hefur ekki staðist fjárhagsleg skilyrði frá birtingu ársreiknings fyrir árið 2014. Á gjalddaga þann 20. nóvember 2015 var heildargreiðsla til skuldabréfaeigenda 166,8 m.kr. Sú upphæð miðast við að vextir skuldabréfsins hækki á tímabilinu upp í 4,25% og greiðslan þannig reiknuð eins og um skuldabréf með breytilegum vöxtum væri að ræða en þannig lækkaði afborgunarhluti á móti hærri vöxtum. Þar sem að bréfin bera fasta vexti þá er það okkar mat að afborgunarhluti bréfsins eigi ekki að breytast við vaxtahækkun heldur leggist 0,5% einungis ofan á vaxtahlutann. Ef síðasta greiðsla af HFJ 14 1 hefði reiknast þannig að einungis vaxtahluta bréfsins væri breytt hefði greiðslan verið 171,0 m.kr. [HUG#2016537] |
|||
|