2010-08-04 18:13:45 CEST

2010-08-04 18:14:43 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Reitir II - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Guðjón Auðunsson ráðinn nýr forstjóri Reita fasteignafélags hf.


Guðjón Auðunsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Reita fasteignafélags hf.
Guðjón er 47 ára aldri, rekstrarhagfræðingur að mennt. Guðjón hefur víðtæka
reynslu úr atvinnulífinu. Undanfarin 9 ár hefur Guðjón starfað sem
framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs hjá N1, áður Oliufélaginu Esso. Þar áður vann
hann sem framkvæmdastjóri hjá Samvinnuferðum Landsýn, Navís Landsteinum og sem
forstöðumaður hjá Eimskip. 

Reitir fasteignafélag er stærsta þjónustufyrirtækið á sviði útleigu á
atvinnuhúsnæði á Íslandi. Reitir hafa yfir að ráða fjölbreyttu fasteignasafni
sem samanstendur af um 130 fasteignum sem staðsettar eru víðsvegar um landið. 

Reitir II ehf. er dótturfélag Reita fasteignafélags hf.