|
|||
2013-12-02 10:33:14 CET 2013-12-02 10:34:16 CET REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirReykjavíkurborg - RVK 19 1Reykjavíkurborg hefur ákveðið í samræmi við útgáfuáætlun 2013 að efna til útboðs í skuldabréfaflokki RVK 19 1 miðvikudaginn 4. desember. Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að markaðsvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. Heildarstærð RVK 19 1 fyrir þetta útboð nemur alls 2.965 m.kr. að nafnvirði. Heimild til lántöku á árinu 2013 er 3.299 m.kr. að markaðsvirði. Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 9. desember 2013. Samkvæmt aðalmiðlarasamningi Reykjavíkurborgar við Arion banka, Íslandsbanka, Landsbanka, MP Banka og Straum fjárfestingarbanka, hafa aðalmiðlarar einir rétt á tilboðsgerð. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðslýsingu í fylgiskjali: Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|