2017-05-16 16:22:52 CEST

2017-05-16 16:22:52 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Lýsing hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Lýsing hf: Birting viðauka við grunnlýsingu


Lýsing  hf., kt.  610601-2350, Ármúla 1, 105 Reykjavík,  hefur birt  viðauka við
grunnlýsingu  dagsetta 14. desember 2016 sem birt var í tengslum við útgáfuramma
skuldaskjala.  Viðaukinn  er  dagsettur  16. maí  2017 og  varðar  breytingar  á
skilmálum    verðtryggðra   skuldabréfa,   uppgreiðsluheimild   og   veðhlutfall
veðtryggðra  skuldabréfa þegar um verðtryggð skuldabréf er að ræða. Viðaukinn er
staðfestur  af  Fjármálaeftirlitinu  og  birtur  á  heimasíðu  stofnunarinnar og
skoðast sem hluti af grunnlýsingunni.

Viðaukinn      er      jafnframt      birtur      á      vefsíðu      útgefanda:
https://www.lysing.is/lysing/starfsemin/fjarfestatengsl/

Grunnlýsinguna   og   viðaukann   má   nálgast   á   vefsíðunni   á   gildistíma
grunnlýsingarinnar  og  hjá  útgefanda  á  skrifstofu  félagsins  að  Ármúla 1 í
Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir:

Sighvatur  Sigfússon, sviðsstjóri Fjármálasviðs á netfanginu sighvatur@lysing.is
eða í síma 540 1700.


[]