2013-11-13 12:45:00 CET

2013-11-13 12:45:00 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 14 0217 OG RIKV 14 0515


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 14 0217 og RIKV 14 0515 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 14 0217:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.526 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 2.076 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,046 (flatir
vextir 3,69%). 


RIKV 14 0515:

Alls bárust 3 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 230 m.kr. að nafnverði. Öllum
tilboðum var hafnað.