2008-09-25 17:56:14 CEST

2008-09-25 17:57:14 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic
Eyrir Invest ehf. - Fyrirtækjafréttir

- Eyrir Invest kaupir til baka skuldabréfaflokkinn EYRI0109


Eyrir Invest, kt. 480600-2150, hefur keypt til baka öll útgefin skuldabréf
félagsins í flokki EYRI0109 að nafnverði 2.000 milljónir króna. Skuldabréfin
bera 15,5% vexti frá útgáfudegi þann 24.janúar 2007 og eru á lokagjalddaga þann
23.janúar 2009. Bréfin eru keypt á 18,6% ávöxtunarkröfu til lokagjalddaga.
Félagið mun í kjölfar viðskiptanna óska eftir afskráningu á þessum flokki
skuldabréfa. 

Eyrir Invest er með tvo aðra flokka skuldabréfa skráða í OMX Nordic Exchange;
EYRI 07 2 með lokagjalddaga í ágúst 2009 og EYRI 05 1 með lokagjalddaga í maí
2012. Eftir sem áður mun félagið birta uppgjör opinberlega samkvæmt reglum
kauphallarinnar.