|
|||
2017-05-17 14:39:54 CEST 2017-05-17 14:39:54 CEST BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR Fagfjárfestasjóðurinn OFAN VÍ - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarUppgreiðsla á skuldabréfaflokki OFANVI 11 1OFAN VÍ, fagfjárfestasjóður í rekstri Stefnis hf., gaf þann 22. desember 2011 út skuldabréfaflokkinn OFANVI 11 1, sem skráður er í Kauphöll Íslands. Lántaki sjóðsins, Ofanleiti 1 ehf., hefur í dag tilkynnt sjóðnum að hann muni nýta sér rétt til uppgreiðslu. Í samræmi við skilmála skuldabréfaflokksins myndast uppgreiðsluskylda sjóðsins á flokknum. Uppgreiðslugjald nemur 1,0% af uppreiknaðri fjárhæð þeirrar afborgunar, sem greidd er umfram hina samningsbundnu afborgun á viðkomandi gjalddaga. Næsti gjalddagi er 7. júní 2017 og verður flokkurinn greiddur upp þann dag. Frekari upplýsingar veitir Anna Kristjánsdóttir, forstöðumaður skuldabréfa hjá Stefni hf.: S: 444 7461 |
|||
|