2013-11-28 14:24:12 CET

2013-11-28 14:25:13 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Ársreikningur

Níu mánaða uppgjör samstæðu Reykjavíkurborgar lagt fram


Afkoman talsvert betri en áætlað var



Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar -
september 2013 var lagður fram í borgarráði í dag fimmtudaginn 28. nóvember. 

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um
7.225 milljónir (mkr) en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 4.949
mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 2.276 mkr betri en áætlun gerði ráð fyrir. 
Viðsnúningurinn er einkum vegna þess að tekjur aukast en þær voru 1.066 mkr
umfram áætlun og matsbreytingum fjárfestingareigna, 1.275 mkr.
Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 15.519 mkr sem er 1.835
mkr betri niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir og 2.191 mkr betri afkoma en á
sama tíma árið 2012. Niðurstaðan sýnir að rekstur samstæðunnar er að styrkjast. 

Frá og með ársbyrjun 2013 breytti Reykjavíkurborg reikningsskilaaðferðum sínum
á þann hátt að fjárfestingaeignir Félagsbústaða hf. eru færðar á gangverði í
samanteknum árshlutareikningi Reykjavíkurborgar í samræmi við lög um
ársreikninga en þær hafa áður verið færðar samkvæmt kostnaðarverðsaðferð. 
Fjárfestingaeignir og eigið fé A og B hluta þann 1. janúar 2013 hækkuðu um 18,1
milljarð kr. vegna þessara breytinga. 

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok
tímabilsins samtals 475 milljörðum króna en heildarskuldir ásamt skuldbindingum
voru 303 milljarðar króna. Eigið fé var 172 milljarðar króna en þar af nam
hlutdeild meðeigenda 8.7 milljörðum króna. 

Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 146 mkr en gert var ráð fyrir að hún
yrði neikvæð um 677 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því betri en gert var
ráð fyrir, sem nemur 823 mkr. sem rekja má til hærri skatttekna, annarra tekna
og hlutfallslega minni hækkunar útgjalda.  Rekstrarniðurstaða tímabilsins var
227 mkr betri en á sama tíma árið 2012.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði
var jákvæð um 402 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 371
mkr. Niðurstaðan er því 773 mkr betri en áætlun gerði ráð fyrir. 

Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til
eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla. Eiginfjárhlutfall,
skuldsetningarhlutfall og sjóðstreymi samstæðunnar er einnig að styrkjast. 

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst
starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að
ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, og Eignasjóð. Til B-hluta teljast
fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu
borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með
þjónustutekjum. Stærstu fyrirtækin í B hluta eru Orkuveita Reykjavíkur,
Félagsbústaðir hf., Faxaflóahafnir sf. og byggðasamlögin Sorpa bs., Strætó bs
og Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs. 



Nánari upplýsingar veitir

Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321