2013-02-27 18:09:13 CET

2013-02-27 18:10:15 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Eik fasteignafélag hf. - Ársreikningur

Eik fasteignafélag hf. hagnaðist um 451 milljón króna árið 2012


Rekstrarhagnaður félagsins var rúmlega 1.9 milljarður króna og jókst um 36,9
prósent frá árinu 2011. Leigutekjur Eikar námu tæplega 1.8 milljarði króna og
jukust um 4,3 prósent frá fyrra ári. 

Hagnaður Eikar fasteignafélags hf. nam 451.074.000 krónum á árinu 2012 og hefur
orðið viðsnúningur í rekstri félagsins frá fyrra ári, þegar félagið hagnaðist
um 9.958.000 króna. Að teknu tilliti til hlutafjáraukningar á árinu nam arðsemi
eiginfjár 9,1 prósenti, en sé tekið tillit til þess að skattar hafa verið
reiknaðir en ekki greiddir nemur arðsemi eiginfjárs félagsins 11,4 prósentum.
Eigið fé Eikar fasteignafélags í lok árs nam 6.457.209.000 króna. 

Auk þess sem félagið jók hagnað sinn verulega á nýafstöðnu ári uxu leigutekjur
Eikar umtalsvert og námu 1.763.937.000 króna á árinu 2012. Að frádregnum
rekstrarkostnaði fjárfestingaeigna upp á 352.787.000 króna námu hreinar
leigutekjur félagsins 1.483.618.000 króna á nýliðnu ári. 

Rekstrarhagnaður Eikar jókst verulega á árinu 2012, en hagnaður félagsins óx um
alls 36,9 prósent frá fyrra ári og nam hann 1.913.923.000 króna á umræddu 12
mánaða tímabili. Hvað rekstrarhagnaðinn varðar er rétt að geta þess að
matsbreyting fjárfestingaeigna á árinu nam 595.427.000 króna á árinu og skýrist
að meginstefnu til af því að leigutekjur félagsins jukust frá fyrra ári.
Fjárfestingaeignir félagsins voru í lok ársins bókaðar miðað við áætlað
matsvirði sitt upp á 20.184.773.000 króna. 

Eignir félagsins jukust á milli ára og námu 20.992.361.000 króna við árslok
síðasta árs og höfðu þá aukist um 5,3 prósent frá 31. desember 2011. 

Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði út arður að fjárhæð 130.000.000
króna á árinu 2013, eða sem nemur um 2% af eigin fé. 

Frekari upplýsingar veitir:
Garðar Hannes Friðjónsson,
forstjóri Eikar fasteignafélags hf.
S. 861-3027

Arsskyrsla 2012.pdf